Endursýna kosningasjónvarpið

Í dag horfði ég á endursýnda Eurovision sem var alveg ágætt þar sem ég var að vinna s.l. helgi og missti þá af herlegheitunum.  Að horfa á lögin endurflutt og þáttinn sem slíkan fannst mér mjög gaman og trú að fólk sem sá þáttinn um síðustu helgi hafi jafnvel skemmt sér við að horfa aftur á hann, en að endursýna allt sem fram fór að loknum flutningi lagana finnst mér  alveg út í hött. Sé ekki  hvað er spennandi við að horfa á  stigagjöfina aftur. Ég veit að Serbía vann og þar með er mér alveg sama um rest.  Hversvegna hélt þá ruv ekki áfram með dagskrá kvöldsins og endursýndi kosningasjónvarpið? Það hlýtur að vera jafn spennandi að sjá endursýndar kosningatölur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Davíð Bragason

Ég hélt að maður á þínum aldri væri löngu orðið ljóst að RÚV og almenn skinsemi haldast ekki í hendur. Þeir þurfa jú ekki að berjast fyrir áhorfendum, þú borgar hvort sem er

Davíð Bragason, 21.5.2007 kl. 15:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband