Besti dagur ársins!

Hingað til hef ég ekkert verið að spá mikið í stjörnuspánna mína, en játa það fúslega að upp á síðkastið hef ég verið að gjóa augunum á hana. Í dag hljóðar hún svona:

 TvíburarTvíburar: Í dag er rétti dagurinn fyrir þig til að biðja um hvað sem er. Ekki halda aftur af þér. Fólk á eftir að hafa samband í hrönnum. Mögulega besti dagur ársins.

Jamm, ...mögulega besti dagur ársins! Vona ekki.... hef ekki beðið neinn um neitt sérstakt, verð að krefjast einhvers, hmmm man bara ekki neinu í svipinn, svo helv.. nægjusamur kannski er ég að halda aftur af mér, já verð að sleppa mér lausum og ...... óvenju fáir viðskiptavinir í dag, hvar eru allir sem ætla að hafa samband við mig??? já hvar eru þið???


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Lögfræðingar eiga eftir að hundelta þig í dag.......þú átt að biðja þá að fletta í þjóðskrá......... þeir fóru mannavilt.......... þessvegna besti dagur ársins.

Anna Einarsdóttir, 6.6.2007 kl. 07:44

2 Smámynd: Arnfinnur Bragason

 Þú hefur hugmyndaflug í lagi...... því get ég ekki neitað.

Hmm ekki galin hugmynd... ímynda sér að allt það verst eigi eftir að henda mann þann daginn og svo þegar það gengur ekki eftir..... nú þá er dagurinn frábær

Arnfinnur Bragason, 6.6.2007 kl. 15:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband