Er í lagi að brjóta lög ef það er í nafni náttúruvermdar?

Alveg er maður hættur að kippa sér upp við það að VG liðið æpi og emji þegar eitthvað er minnst á framkvæmdirnar fyrir austna. Nú er það frétt sem var hér á mbl.is í gær þar sem lögreglan var að biðja um að fréttir frá mótmælendum yrðu teknar með gagnrýnum huga. Eins og við manninn mælt, það ringdi athugasemdum frá VG liði inn á bloggið. Illa farið með aumingja mótmælendur, verið að dæma þá fyrir svosum ekki neitt. Jafnvel fólk sem er í framboði leyfir sér að verja þessa svokölluðu mótmælendur, jafnvel þó þeir hafi verið dæmdir fyrir að brjóta lög í þessu landi. Hvernig á maður að skilja svona lið? Er allt í lagi að brjóta hér lög? Er það sem koma skal ef þetta fólk kemst til valda hér, má maður brjóta lög bara ef það er gert í nafni þess sem VG hefur skilgreint sem náttúruvermd.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Örvar Þór Kristjánsson

Alveg er ég 100% sammála þér.  Bendi fólki á að kíkja t.d á síðu Andreu Ólafsdóttur frambjóðanda VG.

Örvar Þór Kristjánsson, 28.4.2007 kl. 00:17

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Já strákar mínir, það er sko í góðu lagi að brjóta lög og vera svo í framboði.  Sbr. Áddna nokkurn Jónss.   Sjálfstæðisflokkurinn lagði línurnar

Anna Einarsdóttir, 28.4.2007 kl. 11:27

3 Smámynd: Arnfinnur Bragason

Anna, ég vil benda þér á að hann gerði TÆKNILEG mistök, það var aldrei um neinn einbeittann brotavilja að ræða

Arnfinnur Bragason, 28.4.2007 kl. 11:40

4 identicon

Á ekki málshátturinn: "Bylur hæst í tómri tunnu" ágætlega við þegar kemur að þessari umræðu? VG vill bara vekja athygli á sér á mjög svo ómálefnanlegan hátt...

Svandís Rós Þuríðardóttir (IP-tala skráð) 28.4.2007 kl. 11:45

5 identicon

Á ekki málshátturinn: "Bylur hæst í tómri tunnu" ágætlega við þegar kemur að þessari umræðu? VG vill bara vekja athygli á sér á mjög svo ómálefnanlegan hátt...

Svandís Rós Þuríðardóttir (IP-tala skráð) 28.4.2007 kl. 11:48

6 Smámynd: Arnfinnur Bragason

Já og gengur það bara ljómandi vel....

Arnfinnur Bragason, 28.4.2007 kl. 11:58

7 identicon

Með því að "googla" orðið "hræsni" þá kom þessi slóð upp: http://www.b2.is/?sida=tengill&id=232387 - skyldi það vera tilviljun? Ætli það sama gerist ef maður "googlar" orðin: tvöfeldni, ósamkvæmir sjálfum sér, sjálfsblekking, ég lifi í draumi... o.s.frv.?

Svandís Rós Þuríðardóttir (IP-tala skráð) 28.4.2007 kl. 12:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband