Halló bloggvinir!
Miðvikudagur, 17. október 2007
Tók enginn eftir þessu í gær:
......"Faðir minn er móður systir mín"......
Skýring óskast!
Miðvikudagur, 17. október 2007
Tók enginn eftir þessu í gær:
......"Faðir minn er móður systir mín"......
Skýring óskast!
Athugasemdir
semsagt Pabbi er systir móðir minnar :) humm þetta er verulega brenglað .. en vissir þú að við erum mæðrasynir ef útí svona sálma er farið... þar maður kannski að setja þetta upp í tugabrot og fara að þátta þetta eitthvað til að fá botn í þetta hér .. hljóta að vera einhverjir kennarar hér eða prófesorar til að finna þetta út.. kv G ( yes Rooney búinn að setja hann )
Gísli Torfi, 17.10.2007 kl. 16:10
Tókstu ekki eftir að ég tók eftir þessu í gær ? Þú flissaðir a.m.k. eins og smástelpa og ég hef ekki hugmynd um af hverju ? Segi ekki meir, segi ekki meir.
Anna Einarsdóttir, 17.10.2007 kl. 17:08
Ekki alveg Gísli.....
Anna
Arnfinnur Bragason, 17.10.2007 kl. 20:23
Ert þú ekki að fara koma með skýringuna væni?
Edda Agnarsdóttir, 17.10.2007 kl. 21:00
Jæja þá ...... skýrir sig alveg sjálft ef við breytum aðeins orðaröðinni:
"Systir mín, faðir minn er móður" eflaust verið að hlaupa
Arnfinnur Bragason, 18.10.2007 kl. 11:21
:) ég ar einmitt að hugsa um þetta .. kallinn er örugglega bara móður .. já þessi var betri en Íslenska landsliðið ..mikið betri :)
Gísli Torfi, 18.10.2007 kl. 15:46
Það munar um hverja kommu, það er ljóst. Annars erum við öll mæðrabörn er þaki?
Halldór Egill Guðnason, 18.10.2007 kl. 16:39
Já Halldór það munar um hverja kommu enda er þetta gáta sem er miklu betri sögð en skrifuð... sleppti kommunni viljandi því annars hefðuð þið gáfufólkið verið fljót að ná þessu
Arnfinnur Bragason, 18.10.2007 kl. 17:16
Góður Arnfinnur, þú ert fyndinn....Faðir minn er móður systir mín, he,he
Ég er lafmóður eftir daginn, var að hreinsa móðuna af gleraugunum hjá kallinum, svo hann sjái nýja borgarstjórann betur
kloi, 18.10.2007 kl. 21:09
Klói, klóraðu honum líka á bak við eyrun og hresstu aðeins uppá minnið hjá honum.
Ingibjörg Friðriksdóttir, 18.10.2007 kl. 21:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.