Hvað á að gera við svona lið?
Miðvikudagur, 13. júní 2007
Ég myndi láta svona drullusokka hafa drullusokk í hendurnar og vinna við klóakhreinsanir í sumar
Æla, notaðir smokkar og rotnandi matarleifar tóku á móti gestum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skoðankönnun
Miðvikudagur, 13. júní 2007
Þar sem þið kæru bloggvinir og aðrir sem kunnið að slysast hér inn eruð svo dæmalaust velgefið fólk þá hvet ég ykkur til að taka þátt skoðanakönnun sem ég setti hér inn og er afleiðing af djúpum pælingum sem ég hef verið að stunda undanfarin misseri
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Markviss markaðssetning
Þriðjudagur, 12. júní 2007
Ég er markvist að markaðssetja hæfileika mína.. öhmm þetta stóð amk í stjörnuspánni minni í dag..... Jebb orð í tíma töluð. Olga sagði mér upp í gær sagðist vera búin að kynnast einhverjum Frakka sem klæðir hana vel hmm eða úr. Þannig að hún er hætt við að koma til Íslands enda sagði þessi Ásgeri í gullinu að hann hefði ekki vinnu fyrir hana að sinni. Ætlaði að hafa hægt um sig á næstunni, það er víst eitthvað verið að krukka í bissnesinn hjá honum og blöðin komin í málið.
Þá er nú bara að sjá hvernig þessi markaðssetning gengur á lókalmarkaðnum....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Djamm á mánudegi
Þriðjudagur, 12. júní 2007
Flestir sem ég þekki djamma á föstudags eða laugardagskvöldum, sumir bæði kvöldin.
Við sem erum í veitingabransanum erum því yfirleitt að sinna þeim sem djamma þessi kvöld og þar af leiðandi skemmtum við okkur yfirleitt einhver önnur kvöld.
Í gær (mánudag) var stór djamm dagur hjá mér en þá fór ég á bjórmatargolfmót í boði Snæfisks.
Farið var með rútu úr bænum um hádegisbilið og ekið austur fyrir fjall, nánar tiltekið upp á Kiðabergsvöll.
Þar var fengu allir súpu og brauð og fleiri veitingar í vökvaformi. Síðan var völlurinn spilaður og eins og gengur og gerist gekk mönnum misvel.
Þetta var í fyrsta sinni sem ég spila Kiðabergið og komst að því að allar sögur um hversu hryllilegur völlurinn getur verið eiga við rök að styðjast. Gekk annars þolanlega, sérstaklega þar sem þetta er aðeins annar hringurinn minn á þessu ári.
Að móti loknu bauð Jón og hans fólk í Snæfiski til grillveislu sem jafnast á við flottustu veislur sem ég hef setið. Fyrst var gefið að smakka af framleiðsluvörum Snæfisks, síðan var borðaður kóngakrabbi í forrétt og síðan túnfiskur í aðalrétt. Að loknum mat og verlaunaafhendingu var svo brunað í bæinn og allir saddir og sáttir af golfi, matarkræsingum og ómældum bjór
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Á leið í hnapphelluna
Föstudagur, 8. júní 2007
Nú líður óðum að því að ég gifti mig. Já mín heit elskaða er rússnesk og heitir Olga. Fékk mail frá henni fyrir nokkrum vikum þar sem hún var að leita eftir íslenskum karlmanni. Jú ég hélt það væri nú í lagi að kanna hvað hún hefði upp á að bjóða, sérstaklega þar sem ekkert hefur gengið með að veiða á bílinn. Hún greindi frá sérstökum aðstæðum sínum þar sem lífið hefur ekki verið henni sérlega hliðholt og hún hefði heyrt að íslenskir karlmenn væru sérstaklega myndarlegir og velgefnir og hún væri meir en til í að flytja sig vestur yfir fyrir betra og hamingjusamar líf.
Já,já,já, sagði henni strax að hún væri sérlega heppinn að hitta á mig. Hefði upp á svo margt að bjóða sem íslenskar konur kæmu bara ekki auga á og viti eftir að hafa spjallað við hana um skeið þá skildi hún ekkert í að maður eins og ég væri laus á markaðnum
Nú hafa mailin gengið milli okkar um nokkurt skeið og er ég alltaf meira og meira sannfærður um að hún sé akkúrat sú kona sem ég hafi alltaf verið að leita að. Hún sendi mér mynd og vei og vei, þvílík fegurð. Svo er hún læknir og ekki nema 29 og barnlaus og aldrei verið gift. Vel lesin og vel að sér í íslenskri sögu og menningu og hún er meira að segja búin að redda sér vinnu þegar hún kemur. Sagði mér að einhver Ásgeir sem hún hefði verið í samskiptum við hefði boðið sér vinnu við listdans og þar sem hún hefur stundað þann dans frá blautu barnsbein yrði henni ekki skotaskuld að dansa sig inn í hjörtu íslenskra karlmanna.
Já, frábært, ég er bara stoltur af minni tilvonandi og Ásgeir, sem ég held að vísu að sé eitthvað í gullbuissness, verður örugglega mjög ánægður með hana líka. Já ég er bara held ég heppinn í þetta sinnið. Og í framhaldi af því auglýsi ég hér með bílinn minn flott til sölu, þarf ekki á honum að halda lengur. Hann er til sýnis fyrir utan Red Chili á laugaveginum flesta daga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Frjáls og óháður!!!
Miðvikudagur, 6. júní 2007
Er þetta Ísland í dag?
Egill Helgason hefur ekki lengur aðgang að Vísi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Besti dagur ársins!
Þriðjudagur, 5. júní 2007
Hingað til hef ég ekkert verið að spá mikið í stjörnuspánna mína, en játa það fúslega að upp á síðkastið hef ég verið að gjóa augunum á hana. Í dag hljóðar hún svona:
Tvíburar: Í dag er rétti dagurinn fyrir þig til að biðja um hvað sem er. Ekki halda aftur af þér. Fólk á eftir að hafa samband í hrönnum. Mögulega besti dagur ársins.
Jamm, ...mögulega besti dagur ársins! Vona ekki.... hef ekki beðið neinn um neitt sérstakt, verð að krefjast einhvers, hmmm man bara ekki neinu í svipinn, svo helv.. nægjusamur kannski er ég að halda aftur af mér, já verð að sleppa mér lausum og ...... óvenju fáir viðskiptavinir í dag, hvar eru allir sem ætla að hafa samband við mig??? já hvar eru þið???
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Koddu út að borða
Miðvikudagur, 30. maí 2007
Það eru breytingar í nánd. Talaðu við fólk um þær bætur sem þú vilt gera. Í kvöld verður maturinn dásamlegur ef þú tekur hlutverk kokksins....... Þannig hljóðar stjörnuspáin mín.. Verð á pönnunni á Red Chili í dag þannig að ykkur er óhætt að borða hjá mér
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 00:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Nýyrða bull
Þriðjudagur, 29. maí 2007
Nýjasta og flottasta orðið í orðaforða gáfumanna og þeirra sem vilja láta taka sig alvarlega í gáfumanna umræðu er orðið: "vinkill" Nú eru menn með nýjan vinkil á málin eða hafa komið með nýjan vinkil í umræðuna.
Var að tala við einhvern gaur um helgina sem var í teinóttum jakkafötum og þóttist vera eitthvað í einhverjum banka. Látum vera hvar. Hann var alltaf með vinkill þetta og vinkill hitt, þar til ég var orðinn svo leiður á því að ég spurði eins og auli: "Hvað þýðir þetta orð, vinkill, og í hvaða sambandi notar maður það?" Ég ætla ekki að hafa eftir lýsingu hans á því, enda skildi ég hana ekki, hér var jú um gáfumann að ræða og ég ekki á sama stalli og hann. Tek að vísu fram að hann var komin langt ofan í fimmta glas og ekki vel skírmæltur.
Hins vegar var það ekkert skylt því sem ég lærði um vinkla þegar ég vann hjá Sigga í naglabúðinni á Egilsstöðum fyrir margt löngu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Enn af salsa!!!
Laugardagur, 26. maí 2007
Í kvöld ætla ég að mæta ferskur sem aldrei fyrr!, enda vita þeir sem mig þekkja að ferskleikinn er ávallt í fyrirrúmi hjá mér. Stórlega ýktar sögur sem mér hafa borist til eyrna hér á blogginu eru um að ég geti fallið í að þykjast þreyttur og svo fram eftir götunum eru bara ekki sannar
Jæja, Red Chili er staður fyrir salsa, umhverfið flott, tónlistin,skemmtilega, starfsfólkið æðislegt og stemminguna skapið þið. Veit að í dag á að smala öllum þeim sem kunna sporin og svo verður kennsla fyrir okkur hin sem ekkert kunnum. Einhver ferlegur orðrómur á kreiki að ég sé svaka dansari. Tel þann orðróm komin ofan úr sveit og eins og svo margt um mig stórlega ýkt hehe