Á leið í hnapphelluna

Nú líður óðum að því að ég gifti mig. Já mín heit elskaða er rússnesk og heitir Olga. Fékk mail frá henni fyrir nokkrum vikum þar sem hún var að leita eftir íslenskum karlmanni. Jú ég hélt það væri nú í lagi að kanna hvað hún hefði upp á að bjóða, sérstaklega þar sem ekkert hefur gengið með að veiða á bílinn. Hún greindi frá sérstökum aðstæðum sínum þar sem lífið hefur ekki verið henni sérlega hliðholt og hún hefði heyrt að íslenskir karlmenn væru sérstaklega myndarlegir og velgefnir og hún væri meir en til í að flytja sig vestur yfir fyrir betra og hamingjusamar líf.

Já,já,já, sagði henni strax að hún væri sérlega heppinn að hitta á mig. Hefði upp á svo margt að bjóða sem íslenskar konur kæmu bara ekki auga á og viti eftir að hafa spjallað við hana um skeið þá skildi hún ekkert í að maður eins og ég væri laus á markaðnum

Nú hafa mailin gengið milli okkar um nokkurt skeið og er ég alltaf meira og meira sannfærður um að hún sé akkúrat sú kona sem ég hafi alltaf verið að leita að. Hún sendi mér mynd og vei og vei, þvílík fegurð. Svo er hún læknir og ekki nema 29 og barnlaus og aldrei verið gift. Vel lesin og vel að sér í íslenskri sögu og menningu og hún er meira að segja búin að redda sér vinnu þegar hún kemur. Sagði mér að einhver Ásgeir sem hún hefði verið í samskiptum við hefði boðið sér vinnu við listdans og þar sem hún hefur stundað þann dans frá blautu barnsbein yrði henni ekki skotaskuld að dansa sig inn í hjörtu íslenskra karlmanna.

Já, frábært, ég er bara stoltur af minni tilvonandi og Ásgeir, sem ég held að vísu að sé eitthvað í gullbuissness, verður örugglega mjög ánægður með hana líka. Já ég er bara held ég heppinn í þetta sinnið. Og í framhaldi af því auglýsi ég hér með bílinn minn flott til sölu, þarf ekki á honum að halda lengur. Hann er til sýnis fyrir utan Red Chili á laugaveginum flesta daga


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Davíð Bragason

Þanning að þú hefur ekki sent Olgu mynd af þér

Davíð Bragason, 8.6.2007 kl. 09:27

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

*Frusssss*  Hahahaha.

Voruð þið vinir, Arnfinnur og Davíð ? 

Til hamingju Arnfinnur.  Reyndu svo að kenna konunni að kjósa rétt.

Anna Einarsdóttir, 8.6.2007 kl. 14:07

3 Smámynd: Arnfinnur Bragason

Anna í minni fjölskyldu er aldrei talað um Davíð öðruvísi en sem SKÍTHAUS....

 Já og tek þig á orðinu og kenni henni að kjósa rétt og þá XB er það ekki??

Arnfinnur Bragason, 8.6.2007 kl. 23:04

4 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ohhhh Arnfinnur   Þú ert svo lengi að læra.

Ok, nú skil ég..... þessvegna er Davíð með húfu.

Anna Einarsdóttir, 9.6.2007 kl. 00:03

5 Smámynd: Heiða  Þórðar

hahahaha

Heiða Þórðar, 9.6.2007 kl. 00:05

6 Smámynd: Arnfinnur Bragason

haha... S fyrir svaka sætar stelpur.... var það ekki??? Alltaf að læra og reyni að muna þetta fyrir næstu kosningar XSbúinn að skrá mig í rússnesku

Arnfinnur Bragason, 9.6.2007 kl. 00:37

7 Smámynd: Edda Björk Ármannsdóttir

Ertu alveg viss um að Olga hafi ekki sent þér 6 ára gamla mynd af sér og sé búin að þyngjast um 40 kíló?

Edda Björk Ármannsdóttir, 9.6.2007 kl. 17:52

8 Smámynd: Davíð Bragason

Finni ættir þú ekki að fara með rétt mál, þú veist vel að Biggi var skíthausinn, ætli nafnið er var gefið þér hafi ekki verið hlandheili. Annað hvort það eða sóðabrók

Davíð Bragason, 12.6.2007 kl. 12:44

9 Smámynd: Eiður Ragnarsson

nastrovja gamli belgur.....

Eiður Ragnarsson, 16.6.2007 kl. 04:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband