Færsluflokkur: Bloggar
Á toppnum
Laugardagur, 22. september 2007
Tralalalala kíkið á stöðuna!
Stórsigur Arsenal - markalaust hjá Liverpool | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Fótbolti í kvöld
Miðvikudagur, 19. september 2007
Já þá er komið að því að ég reimi á mig skóna og skelli mér í fótbolta... Þröstur, vinnuveitandi minn, tilkynnti mér að við værum að fara í fótbolta í kvöld kl. hálf tíu.... vá !!! ....fæ ég þá frí á morgun?... rifjaði í huganum upp hvenær ég fór síðast í fótbolta.... hæti að kepp 97.... 97!!!! 10 ár!!! ó mæ god.... fór ekkert í fyrravetur..veturinn þar áður tvisvar eða þrisvar.... jú spilaði einn leik í marki með utandeildarliði sem sonur minn er með í fyrra sumar .... heyrði útundan mér eftir leikinn "Seigur sá gamli!" ..sá gamli!.. halda þessir kjúklingar að maður kunni þetta ekki...
Sem sagt er að fara í fótbolta og einhversstaðar á ég stuttbuxur sem eflaust duttu úr tísku fyrir mörgum árum síðan.... spurning að vera ekkert að mæta í þeim, ekki sniðugt að draga athyglina of mikið að sér á meðan maður veit ekki knattspyrnugetuna.... gæti kannski prufað að vera sniðugur og fá lánaðann g-strenginn hans Bratts bloggvins... en þó skilst að það sé í tísku að vera samkynhneigður eða í það minnsta tvíkynhneigður og ef það er satt þá gæti maður vakið upp einhverjar kendir hjá einhverjum sem erfitt yrða að slökkva....
Svo er að hafa rétta skapið, hef ekkert að gera með góða skapið... ó nei það verður heima en ef þið bloggvinir eigið eitthvað af keppnisskapi á lager sem þið getið lánað mér, þá endilega sendið mér smá, búinn að gleyma hvar ég setti mitt.... vantaði það á skákmótinu um daginn og vann þar af leiðandi ekki... smá tuð gæti Halldór látið mig hafa enda mjög gott að hafa það með.... held hann hafi gleymt sínu heima þegar hann fór út, allavega smútsar hann allt og alla þessa daganna, svo mikið að mér er orðið um ó.... Smá tuð Halldór minn, mitt fór allt í dómaranna hér áður fyrr og þeir skiluðu því ekki í öðru formi en gulum spjöldum...
En sem sagt þarf nýjar látlausar stuttbuxur, keppnisskap og smá af tuði og svo fullt af góðum hugsunum frá ykkur kæru vinir og þá er ég tilbúinn í boltann..... já og frí fram eftir degi á morgun
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Las Gunnar bloggið?
Laugardagur, 15. september 2007
Á dauða mínum átti ég von en ekki að Gunnar I Birgisson bakkaði með þessa ákvörðun sína. Skildi hann hafa lesið greinina mína frá því í gær....... ætli bloggið mitt sé orðið svona áhrifamikið?.... skildi Gunnar vera farinn að hræðast mig?... hvað næst?..... er ég að ná áhrifum í Kópavogi..... vita framsóknarmenn í bænum af mér.....
Hey.... ef þið viljið losna við Geira vin Gunnars úr bænum með sína starfsemi þá látið mig bara vita... máttur bloggsins er mikill.
Mótmæli íbúa báru árangur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Frábært!!!
Laugardagur, 15. september 2007
Arsenal í toppsætið eftir 1:3 sigur á Tottenham | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Íslensk enska
Fimmtudagur, 13. september 2007
Það muna sjálfsagt flestir eftir langi með Milljónamæringunum sem var mikið í spilun á útvarpsstöðunum í fyrra. Textinn fjallaði um mann sem lenti í vandræðalegum samskiptum við vegagerðarmenn.
Sagan á bak við textann er eitthvað á þá leið að Japanskur blaðamaður var á ferð um Skeiðarársand stuttu eftir að hlaupinu, sem þar varð 1996, lauk.
Sá Japanski var auðvitað ekki kunnugur aðstæðum og hættum sem leyndust á söndunum eftir hlaupið og ekki vildi betur til en svo að hann pikkfesti jeppann sem hann var á.
Þarna í auðninni þar sem engan var að sjá og hjálpin virtist ekki á næsta leiti, birtist honum allt í einu flokkur ábúðarfullra vegavinnu mann og fór fremstur í flokki stjórinn sem var hinn ófrínýlegasti að sjá.
Aumingja Japananum varð ekki um sel en rifaði þó bílrúðuna eftir bendingum stjórans sem þá þrumaði inn um gluggann
" Ví ar starfing her end ví ar gona ýt jor kar"
Ekki fylgir sögunni viðbrögð Japanans.
Hvort sagan er sönn eða ekki þá heyrði ég hana fyrir nokkrum árum og þá var hún hermd upp á annan mann sem sökum enskukunnáttu (eða leysi) sinnar var varla hægt að ljúga upp á svona sögu.
Þessi ágæti maður rak lengi ferðaþjónustu á og í nágrenni Hafnar í Hornafirði og eins og gefur að skilja þá átti hann stöðug í samskiptum við fólk sem hvorki talaði ekki né skildi íslensku. Karl bablaði bara sína útgáfu af ensku og lét ekki hafa áhrif á sig þó mörum þætti hún bæði torskilin og spaugileg.
Ég heyrið margar sögur af tilsvörum hans en flestum hef ég gleymt, utan eins gullkorns sem eftir honum var haft.
Erlend kona hafði orðið viðskila við hóp sem hún var að ferðast með og þurfti að komast inn á Höfn. Þar sem minn maður vissi af rútu sem hann átti von á gat hann boðið konunni far með henni. Hann klappaði því konunni á bakið og sagði "It is nó problem jú gona hef affer við a dræver"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Hugsum jákvætt
Þriðjudagur, 11. september 2007
Brosið
Brosið þitt blíða og undur bjarta,
bræðir og kætir mitt hjarta
og sólina sjálfri veitir mátt
sem á himni hlær nú dátt.
Til ykkar sem vilja eiga og taka til sín
Verkefnalistinn var eitthvað svo ógnvekjandi að ég ákvað að hugsa eitthvað jákvætt.... veit samt ekkert hvaðan þetta kom... datt bara svona upp..... Æji já gleymdi, ég er heilaþveginn og þess vegna koma bara hreinar hugsanir frá mér
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Skákmót bloggvina með tattoo - mín upplifum
Sunnudagur, 9. september 2007
Nú þegar næstum tveir dagar eru liðnir frá skákmótinu marg um rædda er ekki úr vegi að blogga aðeins um það.
Það sem kom mér mest á óvart var hvað þær væntingar og vonir sem maður gerði til mótsins stóðust fullkomlega og jafnvel rúmlega það.
Það er auðvitað einstakt þegar hópur fólks sem þekkist lítið sem ekkert, kemur saman og allt smellur líka svona frábærlega.
Skrítið og þó... kannski ekki svo mjög þegar til þess er tekið að hér voru saman komnir velgerðir og vandaðir einstaklingar sem höfðu það eitt að markmiði að njóta samveru og skemmta sér í glensi og gamni.
Niðurstaðan einföld, við erum öll einstök og eins nálægt því að vera fullkomin og hugsast getur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Hvað er ást?
Sunnudagur, 9. september 2007
Sagði eitt sinn við konuna mína (fyrrverandi) að ég elskaði hana svo mikið að ég gæti dáið fyrir hana.
Hún svaraði "´Huh, þú segir þetta nú á hverjum degi en gerir aldrei neitt í því
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Skákmót
Laugardagur, 8. september 2007
Í gær fór fram skákmót bloggvina með tattoo!!!!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Hugleiðsla í Rúmfatalagernum
Sunnudagur, 2. september 2007
Anna bloggvinkona mín bloggar um það í dag að hún hafi farið á hugleiðslunámskeið í Reykholtsdalnum í dag og efast ég ekki um að það hefur verið bæði ganglegt og gott.
Þegar ég las það þá datt mér í hug að í dag var ég í hálfgerði hugleiðslu í Rúmfatalagernum þar sem ég stóð fyrir framan stóran rekka af lökum. Ætlaði að kaupa mér tvö stykki og var að velta fyrir mér litnum. Þetta kostaði smá hugleiðslu þar sem ég var ekki viss með hvaða lit ég ætti að taka.
Fyrst datt mér til hugar að grípa bara tvö hvít lök og láta þar við sitja... en svo fannst mér það einhvervegin ekki nógu praktísk. Það sér svo helv... fljótt á þeim.
Það var svo sum hægt að kaupa fleiri lit sem mér leist nú svona og svona á en svo sá ég svört lök, auðvitað það var lausnin þá þyrfti ég ekki að skipta nema mánaðarlega eða svo. Flott!!!
En þá mundi ég allt í einu eftir konunni sem kom inn í fatadeildina í Kaupfélaginu á Egilsstöðum fyrir mörgum árum og hugðist kaupa sér nærbuxur.
-Ég vil fá svartar, sagði hún
-Já, hér á ég svartar, svaraði afgreiðslukonan.´
-Ég er nefnilega á ferðalagi og með því að hafa þær svartar þá sér ekkert á þeim í a.m.k. viku!
Þetta rifjaðist upp fyrir mér og heim fór ég með hvít lök og pakka af þvottefni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)