Færsluflokkur: Bloggar
Besti dagur ársins!
Þriðjudagur, 5. júní 2007
Hingað til hef ég ekkert verið að spá mikið í stjörnuspánna mína, en játa það fúslega að upp á síðkastið hef ég verið að gjóa augunum á hana. Í dag hljóðar hún svona:
Tvíburar: Í dag er rétti dagurinn fyrir þig til að biðja um hvað sem er. Ekki halda aftur af þér. Fólk á eftir að hafa samband í hrönnum. Mögulega besti dagur ársins.
Jamm, ...mögulega besti dagur ársins! Vona ekki.... hef ekki beðið neinn um neitt sérstakt, verð að krefjast einhvers, hmmm man bara ekki neinu í svipinn, svo helv.. nægjusamur kannski er ég að halda aftur af mér, já verð að sleppa mér lausum og ...... óvenju fáir viðskiptavinir í dag, hvar eru allir sem ætla að hafa samband við mig??? já hvar eru þið???
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nýyrða bull
Þriðjudagur, 29. maí 2007
Nýjasta og flottasta orðið í orðaforða gáfumanna og þeirra sem vilja láta taka sig alvarlega í gáfumanna umræðu er orðið: "vinkill" Nú eru menn með nýjan vinkil á málin eða hafa komið með nýjan vinkil í umræðuna.
Var að tala við einhvern gaur um helgina sem var í teinóttum jakkafötum og þóttist vera eitthvað í einhverjum banka. Látum vera hvar. Hann var alltaf með vinkill þetta og vinkill hitt, þar til ég var orðinn svo leiður á því að ég spurði eins og auli: "Hvað þýðir þetta orð, vinkill, og í hvaða sambandi notar maður það?" Ég ætla ekki að hafa eftir lýsingu hans á því, enda skildi ég hana ekki, hér var jú um gáfumann að ræða og ég ekki á sama stalli og hann. Tek að vísu fram að hann var komin langt ofan í fimmta glas og ekki vel skírmæltur.
Hins vegar var það ekkert skylt því sem ég lærði um vinkla þegar ég vann hjá Sigga í naglabúðinni á Egilsstöðum fyrir margt löngu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Salsa annað kvöld!
Fimmtudagur, 24. maí 2007
Minni aftur á Salsakvöldin á Red Chili um helgina!
Það verða sko stuð,stuð,stuð og aftur stuð fram á rauða nótt
Koma svo allir að mæta
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fari það í grá bölvað helv....
Miðvikudagur, 23. maí 2007
Ég hef þann sið að lesa aldrei stjörnuspár. Trú alltof mikið á þær og vil ekki vita hvaða skilaboð þær eru að senda manni frá degi til dags. Í dag las ég þó stjörnuspánna mína svona meira fyrir slysni. Var að skrollast niður forsíðuna á mbl.is og rak þá augun í hana. Hvað haldiðið!!! þar stóð: "Æfðu þig í félagslegri hæfni. Hættu að reyna að ganga í augun á fólki ..."HALLÓ ég var að fjárfesta í rándýru veiðitæki á konur og fæ svo þetta framan í mig. Hverrs á ég að gjalda?
Þetta er ekki til að auka manni áræðið. Það er ekki að furða að ekkert hafi gengið í gær þegar ég reyndi græjuna. Keyrði ábyggilega þrjátíu hringi um miðbæinn án árangurs. Held meira að segja sumir hafi verið farnir að kannast eitthvað við mig allavega tók ég eftir að róninn sem sat á bekk í Austurstrætinu veifaði kumpánlega til mín þegar ég fór framhjá honum í tuttugasta og níunda skiptið. Þá ákvað ég að nóg væri að gert. Veiðihárin voru ekki að virka og svo til að kóróna allt þá var ég orðinn svo ringlaður að ég var næstum búin að keyra niður háaldraða konu sem var á miðri gangbraut á leið yfir götuna. "Hmm, ekki alveg sá markhópur sem ég lagði upp með að ná til" hugsaði ég með mér og ef það væri reyndin að ég veiddi ekki konu á bílinn öðruvísi en að aka hana niður, ja þá held ég skili honum frekar og taki bara strætó það er oft fullt af konum í honum......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Hr. Lappi
Miðvikudagur, 23. maí 2007
Þegar ég var að alast upp heima í Holti var að sjálfsögðu alltaf hundur á heimilinu. Sá síðasti og einna lengst var Lappi. Góðlegur og ljúfur hundur sem var allra yndi. Auðvitað var hans hlutverk, eins og annarra hunda til sveita, að verja túnin ókunnugu búfé, hjálpa til við að rekstur gripa og svo auðvitað til smölunar á haustin.
Eflaust var það einlægur ásetningur Lappa á hvolpa og ungdómsárum að standa sig í stykkinu. Amk gjammaði hann nóg og var duglegur að hlaupa ef honum var sigað, þó svo oftar en ekki hann gerði meir óskunda en gagn, sennilega vegna ungs aldurs og reynsluleysis.
Ekki man ég hvernig málin þróuðust þannig að Lappi breyttist úr ekta sveitahundi yfir í að vera ofdekrað gæludýr. Sennilega hefur þörfin fyrir krafta hans minnkað með fækkun fjár og að lokum þess að jörðin varð fjárlaus en allavega var hann allt í einu orðinn svo ofhaldinn að hann fór að láta eins og hann væri aðalpersónan á heimilinu.
Hann hætti alveg að sinna útköllum t.d. ef senda átti hann á fé í túninu og maður sigaði honum af stað þá bara brosti hann sínu blíðasta og lagðist á hlaðið þar sem sólin skein skærust og lét sér líða vel. Ef eitthvað varð til að styggja rollurnar var það helst hávaðinn í manni sjálfum.
Hann fluttu úr fjósinu og inn í íbúðarhúsi, nokkuð sem engum hundi fyrir hans tíð hafði leyfst, hann át og dafnaði með hverjum deginum sem leið og gerði hellingskröfur til þess sem fyrir hann var borið. Til að mynda þýddi ekkert orðið að bera fyrir hann afganga frá okkur mannfólkinu, slíkt virðingarleysi lét hann ekki bjóða sér. Nei það var farið að kaupa handa honum hundamat. Nokkuð sem hafði ekki verið gert fyrir nokkurn hund fyrir hans tíð. Meira að segja pabbi heitinn, sem var af þeirri kynslóðinni sem ekki eyddi í óþarfa, og keyptur hundamatur var sko óþarfi, keypti orðið mat í hundinn.
Toppurinn á virðingu sem Lappa var sýnd held ég samt að hafi verið þegar einhverju sinni að verið var að borða kvöldmat sem eflaust hefur verið settur sama úr afgöngum sem mamma hefur ætlast til að við kláruðum, henni finnst hreinlega ljótt að henda mat. Jæja eitthvað var eftir í einhverri skálinni og mamma sem var farin að tína af borðinu, ýtir skálinni að pabba og segir -Æji Bragi reyndu nú að klára þetta, það þýðir ekkert að gefa Lappa þetta, hann vill það ekki!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Nýi veiðibíllinn
Miðvikudagur, 23. maí 2007
Jæja góðir hálsar þá er ég kominn nýjan bíl. Jebb og þetta er sko alvöru kerra svona drossía, já með stóru D... Drossía.
Maður slær ekki undir minna en alvöru græju þegar maður á annað borð fjárfestir í fararskjóta sem fyrst og síðast er ætlaður er til veiða . Já eins og mér er kunnugt um þá er flottur bíll eitt af betri veiðatækjum á konur og eftir því sem mér skilst þá eru það ekki bara ungu stúlkurnar sem eru heillaðar af bílum allar falla þær fyrst fyrir bílnum... síðan kemur bílstjórinn, hmmm hvað segir þetta manni???Jæja dvel ekki við það, ég er tvíburi og er ekki að láta óþarfa hugsanir eyðileggja eitthvað... svo nú er ég kominn á alvöru veiðarfæri og það eru meira að segja alvöru græjur í græjunni, hækkaði aðeins í þeim í dag og uppskar reiðilegt augnaráð frá konunni í þar næsta húsi. Ég missti auðvitað það litla sem eftir var af heyrninni á hægra en enn er vinstra nokkuð gott.
Svo þykist ég hafa verið nokkuð klókur, því minn nýi flotti bíll er sko station ójá, markhópurinn minn er nefnilega nánast örugglega mæður, og þá er ekki verra að hafa rúmgóðan bíl, því þegar þær taka bílinn út þá spá þær örugglega fyrst í hvor pláss sé fyrir börnin og farangurinn. Já nú tel ég mig hafa verið nokkuð klárann Já, til að fyrirbyggja allan misskilning þá er ég bara að tala um einstæðar mæður, því ekki vil ég vera viðhald
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Salsa á Red Chili
Mánudagur, 21. maí 2007
Nú verður fjör á Red Chili um helgar í allt sumar.Á Red Chili í Pósthússtrætinu verður opið um helgar fram á rauða nótt. Við erum búin að setja upp Diskókúluna og endurnýja græjurnar og síðan verður Salsatónlistin sett í botn!!! Margaritur, Tequila drykkir og dúndur stuð.
Um næstu helgi verður boðið upp á kennslu í Salsadönsum, svo.............. við bara sjáum ykkur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Sóriðjustefna
Sunnudagur, 20. maí 2007
Já velti fyrir mér hvað ný ríkisstjórn gerir þar sem stóriðjustefnu Framsóknarflokksins nýtur ekki lengur við. Eða var það ekki eitt af þeim slæmu málum sem flokkurinn stóð fyrir og gerði það að verkum að nauðsynlegt var að losna við hann úr ríkisstjórn!
Aukinn stuðningur við álver á Bakka á Norðausturlandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Endursýna kosningasjónvarpið
Sunnudagur, 20. maí 2007
Í dag horfði ég á endursýnda Eurovision sem var alveg ágætt þar sem ég var að vinna s.l. helgi og missti þá af herlegheitunum. Að horfa á lögin endurflutt og þáttinn sem slíkan fannst mér mjög gaman og trú að fólk sem sá þáttinn um síðustu helgi hafi jafnvel skemmt sér við að horfa aftur á hann, en að endursýna allt sem fram fór að loknum flutningi lagana finnst mér alveg út í hött. Sé ekki hvað er spennandi við að horfa á stigagjöfina aftur. Ég veit að Serbía vann og þar með er mér alveg sama um rest. Hversvegna hélt þá ruv ekki áfram með dagskrá kvöldsins og endursýndi kosningasjónvarpið? Það hlýtur að vera jafn spennandi að sjá endursýndar kosningatölur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Stærsti sigurinn
Mánudagur, 14. maí 2007
Ég er mikill áhugamaður um knattspyrnu og hef gaman af að fylgjast með þeim skrítna leik. Ég stundaði þetta sport líka töluvert á árum áður en undanfarin ár hefur áhuginn flust að mestu yfir í sjónvarpssófann.
Þó svo ferill minn sé ekki titlum og medalíum skreyttur þá eru augnablikin og minningarnar engu að síður margar mjög skemmtilegar og gaman að rifja þær upp. Sennilega er sumarið sem ég spilaði með Hugin Fellum, sem sennilega er eitthvað það lélegasta lið sem fram hefur komið í íslenskir knattspyrnu, það allra minnisstæðasta og jafnvel það skemmtilegasta.
Við töpuðum flestum leikjum með tveggja stafa tölu og vöktum gríðarlega athygli fyrir skrautlega úrslit. Þetta var ekki allt alslæmt, t.d. gerði Bjarni Fel úrslitum okkar alltaf góðskil í íþróttafréttum, við lentum í blaðviðtali í Helgarpóstinum sáluga og sveitastjórinn okkar sagði mér að eitt sinn er hann átti erindi við fjárlaganefnd alþingis þá hafa sveitarfélagið verið vel kynnt; "Er það ekki þaðan sem Huginn Fellum er?" Hann var ekki frá því að erindi hans hafi fengið fljóta og góða afgreiðslu vegna þess hversu vel liðið ver kynnt.
Þar sem það eru liðin tæp fimmtán ár síðan þetta fræga lið var og hét held ég að sé óhætt að rifja þetta upp enda þekki ég engan sem hefur borið skaða af að hafa tekið þátt í þessu.
Lengi vel kíkti ég í bókina "Íslensk knattspyrna" þegar hún kom út á haustin svona til að skoða hve mörg lið væru enn starfandi sem ættu okkur að þakka stærsta sigur sinn.
Alltaf er mér samt minnisstæðast þegar ég las tölfræðiniðurstöður um okkur. Stærsti sigur: 1:1 gegn Austra 14.júni á Eiðavelli
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)