Ættarmót
Miðvikudagur, 25. júlí 2007
Nú lýður óðum að ættarmóti stórfjölskyldunnar í móðurlegg. Það verður haldið að Reykhólum um næstu helgi.
Ég er svona farinn að velta fyrir mér hvað ég þurfi að hafa með mér. Hef komist að því að það er mikil þrautarganga fyrir mann sem kann ekkert að skipuleggja svona dæmi. Kemur hér fram munurinn á körlum og konum, Þær muna eftir öllu þegar farið er í svona ferðir.
Ég ætla að vera í tjaldi með dætrum mínum og syni svo ég verð að muna eftir tjaldinu, og vindsængum, svefnpokum. Nú ég man auðvitað eftir bjórnum hann er sko kominn í skottið. Spá í að hafa eina koníaksflösku með til að bjóða gestum sem heimsækja mig í tjaldið, skildi ég eiga að hafa koníaksglös með mér eða á maður bara að bjóða upp á koníak í plastglösum. (Muna að afla upplýsinga hjá reyndari ferðalöngum)
Svo er það maturinn. Spá í að semja við systur mína um að versla fyrir mig í leiðinni þá er ég nokkuð viss um að það sé hugsað fyrir öllu og ekkert gleymist. Hún er sko kona.
Spurning um golfsettið veit ekki hvort það sé hægt að komast í golf á Reykhólum (Muna ath. með golfvöll)
Fótboltinn verður með sonur minn klikkar ekki á því. Hann átti einnig val um að fara með móður sinn á ættarmót þessa sömu helgi. Að vel ígrunduðu máli sagði hann henni að hann veldi frekar að fara með föður sínum, það væru miklu fleiri í hans ætt sem kynnu fótbolta heldur en hennar.
Eitt hef ég lært af tjaldferðum og það má ekki gleyma salernispappírnum. Klikka ekki á því
Og eitt að lokum muna að taka góða skapið með sér.
Eða nei þarf ekki að muna það er alltaf í góðu skapi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Skemmta sér með stæl!
Miðvikudagur, 25. júlí 2007
Hann hefur örugglega verið búinn að selja olíutunnur fyrir reikningnum þegar hann vaknaði eftir ævintýrið.
Keypti drykki á barnum fyrir 13 milljónir kr. | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Auðvitað
Þriðjudagur, 24. júlí 2007
Hér talar snillingur sem er búinn að margsanna að það er ekki allt unnið með að kaupa og kaupa nýja leikmenn.
Arsenal er að koma upp með gríðarlega efnilegt lið sem verður gaman að fylgjast með í vetur.
Wenger: Ótrúlegt hve miklu félögin hafa eytt í leikmannakaup | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
Fólk sem hefur misst af
Mánudagur, 23. júlí 2007
Með vaxandi velferð og auknum lífsgæðum er alltaf hópar fólks sem plummar sig ekki í samfélaginu og missir af einhverjum ástæðum af velferðinni.
Þá er einfaldasta leiðin að kenna öllum öðrum um og reyna að brjóta niður og eyðileggja það sem aðrir hafa byggt upp.
Áberandi mótmæli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Skák og mát
Mánudagur, 16. júlí 2007
Þegar ég var að alast upp í Fellum á Héraði tíðkaðist að koma saman vikulega yfir vetrarmánuðina og tefla í félagsheimilinu á Rauðalæk.
Í fábreyttu félagslífi lítilsamfélags voru uppá komur sem þessar gripnar fegins hendi og var alltaf töluverð tilhlökkun hjá manni fyrir skákkvöldin.
Teflt var allan veturinn eins og áður sagði og síðan var slúttað á vorin með veglegu kvöldi þar sem boðið var upp á kaffi og með því og þeir verðlaunaðir sem best höfðu staðið sig yfir veturinn.
Fyrstu veturna skorðaði ég ekki hátt á þeim lista en með tíð og tíma hækkaði maður sig jafn og þétt.
Hápunktur hvers vetur var þegar att var kappi við Hlíðamenn, en þeir voru nokkuð sleipir og höfðu yfirleitt betur í þessum viðureignum.
Ég man alltaf þegar ég var valinn í fyrsta sinni til að keppa fyrir hönd okkar Fellamann. Fyrirkomulag þessar keppna var með þeim hætti að teflt var á tólf borðum og keppi hver keppandi tvær skákir við sama andstæðing
Þar sem ég var langyngstur og sjálfsagt slakastur í okkar hópi þá kom það í minn hlut að keppa á tólfta og síðasta borði. Mig minnir að ég hafi verið 10 eða 11 ára þegar þetta var.
Þetta sinnið kom það í okkar hlut að heimsækja Hlíðamenn og þegar við komum á staðinn sé ég fljótt að þeirra lið var einnig skipað gömlum köllum en á þessum aldri eru allir gamlir þó svo menn séu kannski ekki nema rétt skriðnir yfir tvítugt og ekki farir að raka sig daglega. Ein undantekning var þó í þeirra lið og það var stúlka ein á svipuðu reki og ég. Það fór hrollur um mig. Ég af öllum átti þó ekki að fara að mæta henni. Ekkert var eins neyðarlegt og að mæta stelpu og kannski tapa. Ég held ég hafi beðið til Guðs um að hún tefldi á einhverju öðru borði en því tólfta...en nei auðvitað kom það í minn hlut að eiga við hana og ekki bætti úr að ég heyrði því fleygt að hún væri ansi sleip.
Aldrei hef ég upplifað prófskrekk, sviðskrekk, hnút í magann fyrir kappleiki eða annað sem mætti ætla að menn upplifðu fyrir eitthvað sem dregur athyglina að frammistöðu mans. Aldrei upplifði ég neitt þessu líkt nema í tvö skipti. Annað var þegar ég tók bílprófið og svo í þetta sinnið þegar ég stóð frami fyrir því að mæta þessari stelpu í alvöru skákkeppni.
Þrátt fyrir að ég óskaði mér annars þá var mér nauðugur einn kostur að takast á við þennan ógurlega andstæðing sem nú var komin í skrímslismynd. Og þegar við settumst að skákborðinu þá var ég þvalur í lófum, þurr í hálsinum og steinn í maganum á mér.
Hún brosti feimnislega og kynnti sig.
Ég tuldraði eitthvað óskiljanlegt og gætti þess að horfast ekki í augu við hana.
Skákin hófst og ég komst fljótt að því að þennan andstæðing mátti ekki vanmeta. Ég hafði lært dálítið í fléttum og að leggja gildur og hugðist nota mér það sem ég taldi mig kunna. Eitthvað virtist þó hernaðaráætlun mín ekki vera að virka og smátt og smátt fækkaði í mín liði og hvar vígamaðurinn lá í valnum og eftir tiltölulega stutta viðureign var liðsmunurinn orðinn slíkur mér í óhag að ekki var um annað en að leggja niður vopnin og játa sig sigraðan.
Niðurbrotinn og með sært stolt stóð ég upp frá borðinu og fannst veröldin vera að hrynja yfir mig. Sem betur fer var þetta fyrsta skákin til að klárast svo vitni að þessum óförum mínum voru fá og ég þurfti ekkert að útskíra neitt fyrir félögum mínum.
Áður en seinni umferðin hófst var hlé þar sem boðið var upp á svignað hlaðborð með rjómapönnsum og tertum og tíminn notaður til að spjalla um heima og geyma eins og gjarnan er á mannamótum.
Andstæðingur minn, skrímslið, kom til mín og var að vonum létt yfir henni. Hún fór að spjalla við mig og mér til furðu þá var ekkert sem minnti á grobb eða hroka hjá henni heldur komst ég fljótt að því að þetta var hin viðkunulegasta stúlka sem gaman var að spjalla við og smá saman glaðnaði yfir mér og þegar við settumst aftur að skáborðinu og eftir að hafa heyrt nokkur uppörvandi hvatningarorð frá félögunum, var sem nýr og einbeittari maður settist að tafli sem ekki þurfti lengur að takast á við neitt skrímsli. Ekki veit ég hvers vegna stúlkan sagði mér áður en skákin hófst að nú væri komið að mér, hún tapaði hvort eð er alltaf með svart. Kannski vildi hún hughreysta mig eitthvað frekar eða þá hún hafi verið búin að ákveða að hafa sig ekkert sérstaklega í frami en allavega þá var ég jafnfljótur að jafna taflið og ég hafði verið að tapa fyrri skákinni.
Ég stóð því nokkuð sáttur uppfrá borðinu. Miklu fargi var af mér létt. Ekki var líka verra að komast að því að nokkrir í mínu liði höfðu tapað báðum sínum skákum og sumir aðeins náð einu jafntefli, þannig að mín frammistaða var ekkert svo slæm.
Þegar vinningar voru svo taldir saman að loknum öllum skákum kom í ljós að Hlíðamenn höfðu haft betur 12 1/2 gegn 11 1/2 okkar.
Á heimleiðinni í reykmettum bílnum svo sveið í augun þá var eitthvað verið að skjóta á mig að ég hefði tapað fyrir stelpu. Mér var alveg sama ég var meir en sáttur að hafa tapað fyrir henni, hún var ekkert verri en ég og sennilega leið mér bara betur en hefði ég unnið báðar skákirnar. Hins vegar leiddist mér að sá sem hvað mest reyndi að gera úr þessu tapi mínu (var dálítið ósáttur við að tapa fyrir Hlíðamönnum) var einn af þeim sem tapaði báðum sínum skákum.
Ég gat því ekki á mér setið að inna hann eftir hans árangri.
Svarið fékk ég ekki en það sem eftirlifði ferðarinnar var ég a.m.k. látinn í friði.
Síðar á lífsleiðinni hef ég oft tapað fyrir konum á allskyns völlum og ég man ekkert sérstaklega að það hafi böggað mig neitt sérstaklega.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fótbolti og meiri fótbolti
Föstudagur, 13. júlí 2007
Þar sem mínir hæfileikar lágu ekki á sviði knattspyrnunnar, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að sanna hið gagnstæða þá hef ég flutt áhugann að mestu upp í sófann og fylgist með ungum og hæfileikaríkum knattspyrnumönnum leika listir sínar frá þeim sjónarhóli.
Eina undantekningu geri ég þó frá stúkusætinu heima í stofu og það er að þegar sonur minn keppir þá reyni ég að mæta á völlinn til að berja augu þann litla snilling.
Hann er nefnilega andstætt mér með mikla og greinilega hæfileika og mun eflaust ná langt á knattspyrnuvellinum haldi hann áfram af jafn miklum áhuga og ástundun og hann gerir í dag.
Reyndar er hann bara sjö ára og langur og strangur skóli framundan
Ég er auðvitað fyrir löngu búinn að ofgera öllum fjölskyldumeðlimum í monti mínum á honum og ef ekki væri fyrir óendalegt umburðalyndi frændgarðs hans þá væri hann eflaust farinn að lýða fyrir montið í mér.
Hvað um það um helgina þá er hann að spila ásamt félögum sínum í Hetti á Egilsstöðum á móti á Ólafsfirði og ég er að spá í að renna norður og fylgjast með þeim og missa mig aðeins í stuðningslátum.
Ég veit og hef oft séð að börn hálf skammast sín fyrir lætin í foreldrunum á svona mótum en ég ætti að vera nokkuð "save" þar sem með mér í för verða tvær unglings dætur mínar og þær halda mér á jörðinni fyndist þeim ég vera farinn að ganga of langt í stunðningnum
En allavega áfram Ísar Karl
Eltingaleikur....klukk
Fimmtudagur, 12. júlí 2007
Eltingaleikurinn heldur áfram hér á blogginu og ekki get ég skorast undan frekar en aðrir enda búið að klukka mig tvisvar í dag
8 atriði um mig:
- Ég er 44 ára
- Ég á 4 börn
- Ég er rekstrarstjóri...(vinnuþræll)
- Ég held með Arsenal
- Ég fíla golf
- Ég lítið fyrir viðhald
- Ég er að austan (héraðinu)
- Nú er ég ráðþrota
og svo er að finna átta fórnarlömb .....má maður ekki klukka til baka?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Teitur Þórðar með gamaldagsfótbolta
Fimmtudagur, 12. júlí 2007
Nú er Teitur Þórðarson búinn að vera við stjórnvöldin hjá KR í tæp tvö ár og á sama tíma hefur liðinu hrakað stórlega. Hann hefur í höndunum sterkasta hóp knattspyrnumann sem spil á Íslandi og ljósi þess er sú knattspyrna sem liðið leikur fyrir neðan allar hellur.
Í gamladag var þessi knattspyrna kölluð "kikk and run" og var aðalsmerki liða sem ekki höfðu á góðum spilurum að byggja og voru þá þjálfarar þessara liða oftast að horfa til þess að liðin næðu viðundandi árangri fremur en að skemmta áhorfendum með áferðafallegri knattspyrnu.
Í hverju liðið er það þjálfarinn sem leggur upp leikkerfin og leikaðferðina og svo er einnig með KR, vænti ég og þar sem KR liðið er, eins og ég sagði, eitt það sterkasta á Íslandi þá hlýtur það að vera þjálfarinn, Teitur, sem á mesta sök á ömurlegum og leiðinlegum leik liðsins.
Í leiknum gegn Val, var greinilegt að það átti fyrst og fremst að hugsa um að brjóta niður spil Valsarann en að leika eitthvað sem flestir kalla knattspyrnu og svo vasklega gengu KRingar fram í því að nær hálft Valsliðið var vart leikfært að loknum leik.
Ég held því KRinga vegna að Björgúlfur ætti að taka upp budduna og borga upp samning Teits svo hann geti snúið sér að einhverju allt öðru því hann er greinilega mörgum árum á eftir þeim kröfum sem við áhorfendur viljum sjá framkvæmdar á knattspyrnuvellinum
Valur vann KR í vítaspyrnukeppni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fyndnir fjölmiðlamenn
Þriðjudagur, 10. júlí 2007
Ég get ekki sagt að ég sé mikill fjölmiðlafíkill. A.m.k. horfi ég nánast ekkert á sjónvarp og útvarpið hljómar bara stundum í bílnum og í vinnunni. Blöðin eru sá miðill sem ég nota sennilega hvað mest.
Af útvarpsrásunum er það helst Bylgjan sem er valin, sennilega af gömlum vana frekar en meðvitraðri ákvörðun. Tónlistin sem þar er spiluð fellur ágætlega að mínum smekk og útvarpsfólkið ágætt, segir manni reglulega hvað klukkan er og hvernig veðrið sé. Ef maður skildi ekki vita það.
Það er þó eitt með þetta ágæta útvarpsfólk, fyrir að tönglast stöðugt á klukkunni og veðrinu sem er farið að pirra mig dálítið en það er þessi ógurlega sýndarleikur um að vera svo ofboðslega hresst og kátt og í svo góðum gír að maður sér bara fyrir sér tannkremsbrosið límt á fésið á því daginn út og inn. Þessi sýndarmennska keyrir þó um þverbak þegar tveir eða fleiri eru saman í útsendingunni, þá rignir yfir mann aulabröndurum og að þeirra mati fyndnum athugasemdum og svo pína þau upp úr sér hláturinn svo maður heldur stundum að maður sé að hlusta á "útvarp vitleysingahæli" Sorry bara mín skoðun.
En sem betur fer virkar off takkinn á útvarpinu mínu ennþá.....svo ég veit ekki hversvegna ég er að nöldra þetta, kannski af því að úti er sól og blíða og ég í svo dásamlega góðu skapi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Strákur ertu úr Mosó?
Þriðjudagur, 10. júlí 2007
Kíkti við á hverfispöbbnum eftir vinnu á laugardagskvöldið. Fastakúnnarnir voru mættir og allt eins og maður bjóst við. Var að velta fyrir mér að fara heim þegar þar dúkkar uppi maður á mínum aldri (örlítið eldri) og við förum að spjalla saman. Hann var á leiðinni á Players og úr var að ég skellti mér með honum.
Eftir að hafa setið þar nokkra stund og hlustað á hljómsveitina, sem var mjög þétt og bara þrusu góð og horft á kvenfólkið (auðvitað) varð mér á orði að mér fyndist eins og þetta væri nokkurs konar markaður. Konur að dansa saman og umhverfis karlmenn að mæna þær út.
-Já það er ekkert spennandi í gangi hér, sagði kunningi minn og vildi að við færum eitthvað annað.
Ég var nú frekar dræmur enda búinn að mæna út nokkrar huggulegar konur sem mér fannst, en kunningi minn var harðákveðinn svo ég lét tilleiðast og að hans tillögu var stefnan tekin á Kringlukránna.
Hafi manni fundist Players ekki vera spennandi kostur þá veit ég ekki hvaða orð ætti að nota um Kringlukránna. Ég var örugglega langyngstur þarna og sándið í hljómsveitinni var eins og úr gömlu fermingagræjunum mínum.
Þar sem við vorum nú komnir á staðinn var ekki um annað að ræða að setjast niður og fá sér einn kaldan og fylgjast með því sem fram fór.
Ekki höfðum við lengi setið þar en að borðinu kemur eldri maður sem tjáði okkur að hann væri gamall sjómaður og vildi endilega segja okkur hetjusögur af sjónum. Eitthvað sem ég var ekki í stuði til að hlusta á í þetta skiptið
Ég tók eftir að á aðra höndina vantaði á hann tvo fingur svo ég spurði hann hvort hann hefði skilið þá eftir úti á sjó.
Jú í spilinu á einhverjum togara sem ég kann ekki að nefna höfðu þeir lent. - En ég er nú ekki verri maður fyrir það, sagði hann.
-Nei, ekki verri, svaraði ég, en minni maður hlýturðu að vera, sagði ég og þóttist ógurlega fyndinn
Hann skildi ekki húmorinn og settist á næsta borð og horfði það sem eftir lifði kvöldsins á mig augum sem ég gat ekki túlkað öðru vísi en hann vildi mér eitthvað illt.
Nokkru síðar vatt sér að mér kona sem var amk tuttugu árum eldri en ég og spurði mig
-Strákur, ertu nokkuð úr Mosó!!!!!
Ekki gat ég játað því og sem betur fer datt trommuleikaranum í hug að taka sóló á tómu tunnurnar sínar þannig að ég missti alvega af hvað konan hafði að segja í framhaldinu.
Ég bara man ekki eftir hvenær kona kallaði mig síðast strák!
Ég brosti bara mínu blíðasta til hennar og svaraði einhverju óskiljanlegu og dreif mig að ná í leigubíl til að skutla mér heim og ákvað með sjálfum mér að kíkja næst á Kringlukránna í kringum 2030
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)